Almennar fréttir - 17.05.2023
Mundu eftir orlofsuppbótinni þinni!
Orlofsuppbót félagsfólks VR er 56.000 kr. árið 2023, m.v. fullt starf, og á að greiða þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur í 100% starfi fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2022 til 30. apríl 2023.
Uppbótin greiðist, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem hefur verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu vikuna í maí.
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattur, félagsgjald og lífeyrissjóðsiðgjald greiðist af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.