Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 24.11.2023
Mundu eftir desemberuppbótinni!
Desemberuppbót skv. samningum VR er 103.000 kr. m.v. fullt starf fyrir árið 2023.
Desemberuppbótin er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af desemberuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á desemberuppbótina.
Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem verið hefur samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum EÐA eru í starfi fyrstu viku í desember.