Almennar fréttir - 07.03.2025
Mundu eftir að kjósa
Klukkan tíu í morgun, föstudaginn 7. mars 2025, höfðu 2234 VR félagar greitt atkvæði í rafrænum kosningum til formanns og stjórnar félagsins, sem er 5,6% kosningaþátttaka. Kosningarnar hófust fimmtudaginn 6. mars og standa til kl.12:00 á hádegi fimmtudaginn 13. mars.
VR hvetur félagsfólk til að kynna sér frambjóðendurna og nýta atkvæðisrétt sinn. Sjá nánar hér.