Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 22.04.2020
Minnum á launahækkunina næstu mánaðamót
Samkvæmt kjarasamningum VR tók launahækkun gildi þann 1. apríl síðastliðinn og hækka taxtar um 24 þúsund krónur á mánuði en almenn launahækkun er 18 þúsund krónur. Launahækkunin tekur til launa fyrir aprílmánuð og kemur því til útborgunar hjá flestum félagsmönnum þann 1. maí næstkomandi. Athugið að þeir sem eru á hlutabótum fá hækkun á þann hluta launa sem greiddur er af atvinnurekanda.