Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 06.03.2017
Minnum á kynningarfund frambjóðenda
Frambjóðendur til stjórnar og formanns VR kjörtímabilið 2017-2019 kynna sig og áherslur sínar á félagsfundi VR á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld, mánudaginn 6. mars. Fundurinn hefst kl. 19:30.
Tveir aðilar bjóða sig fram til formanns og ellefu til sjö sæta í stjórn. Kosningarnar hefjast svo kl. 9:00 að morgni þriðjudagsins 7. mars.
Allir VR félagar velkomnir
Félagsmenn utan höfuðborgarsvæðisins geta skráð sig til kl. 14.00 í dag, 6. mars, á vr@vr.is og horft á kynningarnar á skrifstofum VR gegnum fjarfundabúnað á Egilsstöðum, Akranesi og í Vestmannaeyjum.
- Nánari upplýsingar um frambjóðendur