Almennar fréttir - 19.03.2025
Minnum á aukinn orlofsrétt
Í síðustu kjarasamningum var samið um aukinn orlofsrétt fyrir félagsfólk VR.
Uppsöfnun réttinda á tímabilinu 1. maí 2024 til 30. apríl 2025 vegna orlofs sumarið 2025 er eftirfarandi:
- Lágmarksorlof er óbreytt, 24 virkir dagar eða tveir orlofsdagar fyrir hvern unninn mánuð á orlofsárinu og orlofslaun eru 10,17% á öll laun.
- Félagsfólk sem hefur unnið 6 mánuði í sama fyrirtæki og er orðið 22 ára eða hefur unnið í 6 mánuði í sama fyrirtæki eftir framhaldsskólapróf fær 25 orlofsdaga og eru orlofslaun 10,64%. Þetta er aukinn réttur.
- Eftir 5 ár í sömu starfsgrein er orlof 25 dagar og orlofslaun 10,64%. Þessi réttindi eru óbreytt frá fyrri samningum.
- Eftir 5 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein eru orlofsdagar 27 og orlofslaun 11,59%. Þetta er aukinn réttur en hann gilti áður einungis fyrir þau sem höfðu náð 5 árum í sama fyrirtæki.
- Eftir 7 ár í sama fyrirtæki er orlof 30 dagar og orlofslaun 13,04%. Þetta er aukinn réttur, gilti áður eftir 10 ár í sama fyrirtæki.
Þessar breytingar tóku gildi þann 1. maí 2024. Ef orlof er reiknað í hverjum mánuði og það lagt inn á banka er mikilvægt að fylgjast með því að orlofsprósentan hafi hækkað í samræmi við þessar breytingar en orlofsprósentuna má sjá á launaseðlinum.
Ef orlofsstundir eru birtar á launaseðli þarf að gæta að því að orlofsstundirnar hafi hækkað til samræmis. Einstaklingur sem er með 24 daga orlofsrétt og vinnur 100% vinnu í heilan mánuði í dagvinnu fær samkvæmt kjarasamningi 17,08 orlofsstundir á mánuði í afgreiðslu en 16,2 klst. á skrifstofu. Ef rétturinn er 25 dagar, eru orlofsstundirnar 17,87 í afgreiðslu en 16,94 klst. á skrifstofu.
Félagsfólk sem lýkur framhaldsskólaprófi núna í vor þarf að koma upplýsingum um framhaldsskólaprófið til síns næsta yfirmanns til að fá aukinn orlofsrétt. Réttinn fær það þá eftir 6 mánuði í starfi hjá sama fyrirtæki eftir að framhaldsskólaprófi hefur verið lokið. Þessi réttur á við um öll sem lokið hafa framhaldsskólaprófi áður, þ.e. hvert og eitt verður að koma upplýsingum um það til atvinnurekanda til að njóta þeirra réttinda.
Það sama á við um félagsfólk sem hefur unnið í 10 ár í sömu starfsgrein en innan við 5 ár í sama fyrirtæki. Skila þarf staðfestingu til atvinnurekanda til að fá aukinn orlofsrétt. Það má til dæmis gera með því að skila inn greiðslusögu félagsgjalda sem sjá má á Mínum síðum á vr.is. eða fá frá öðrum stéttarfélögum sem greitt hefur verið til. Aðilar geta samið sín á milli um fleiri orlofsdaga og hækka þá orlofslaunin með tilliti til þess. Ef samið er um aukin orlofsréttindi umfram það sem fram kemur í kjarasamningi er mikilvægt að það sé gert með skriflegum hætti.
Áður gilti að áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjaðist eftir þriggja ára starf hjá nýju fyrirtæki. Frá og með 1. maí 2024 þarf einstaklingur einungis að vinna í tvö ár hjá nýju fyrirtæki til að öðlast þann rétt sem hann hafði hjá fyrrum atvinnurekanda.
Frá og með 1. maí nk. (tímabilið 1. maí 2025 til 30. apríl 2026) vegna orlofs sem kemur til töku á næsta orlofsári þ.e. sumarið 2026 aukast orlofsréttindin sem hér segir:
- Eftir 5 ár í sömu starfsgrein er orlof 26 dagar og orlofslaun 11,11%. Hér hefur einum degi verið bætt við réttindin.
- Eftir 4 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein eru orlofsdagar 28 og orlofslaun 12,07%. Hér hefur einum degi verið bætt við réttindin ásamt því að réttindunum er náð einu ári fyrr en áður.
- Eftir 6 ár í sama fyrirtæki er orlof 30 dagar og orlofslaun 13,04%. Hér ávinnast réttindin einu ári fyrr en áður.