Almennar fréttir - 05.11.2024
Miðasala hefst í dag - Ævintýri í Jólaskógi
Miðasala á Ævintýri í Jólaskógi hefst kl. 10:00 í dag, þriðjudaginn 5. nóvember.
VR gefur félagsfólki sínu tækifæri til að upplifa ævintýraferð í Jólaskógi í aðdraganda jólahátíðarinnar í ár. Sýningin fer fram í Guðmundarlundi og standa jolasveinar.is að sýningunni. Félagsfólk getur valið um að koma dagana 10., 13. eða 14. desember en með því að dreifa skemmtuninni á nokkra daga gefst fleirum tækifæri til að njóta en ella.
Einnig býður VR upp á Ævintýri í Jólaskógi með bættu aðgengi í Elliðaárdal og verða tvær sýningar þann 11. desember.
Miðasala fer fram á Orlofsvef VR. Miðar verða seldir með afslætti og kostar miðinn einungis 500 kr. Hámarksmiðafjöldi fyrir hvern VR félaga er 6 stk. Athugið að miðafjöldi er takmarkaður.
Vinsamlega athugið að sýningarnar fara fram í Guðmundarlundi en sýningarnar með bættu aðgengi fara fram í Elliðaárdal. Mikilvægt er að velja miða á rétta sýningu á Orlofsvefnum.