Vr Fanar 1

Almennar fréttir - 21.03.2025

Launataxtar VR hækka frá 1. apríl

Launataxtar samkvæmt kjarasamningum VR hækka um 0,58% frá og með 1. apríl og kemur hækkunin til greiðslu um mánaðamótin apríl/maí. Þetta er niðurstaða launa- og forsendunefndar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Samið var um svokallaðan kauptaxtaauka í síðustu kjarasamningum. Hann á að tryggja að þau sem taka laun samkvæmt töxtum fylgi launaþróun og fái hækkun ef laun á vinnumarkaði hækka meira en lægstu taxtalaun. Það hefur raungerst á fyrsta ári samningsins. Kauptaxtaaukinn eða hækkun launataxta nú er það hlutfall sem launavísitala Hagstofunnar hefur hækkar umfram hækkun viðmiðunartaxta. Þessi hækkun tekur eingöngu til launataxta - sjá hér launataxta frá 1. apríl 2025. Launa- og forsendunefndin mun skoða þessa þróun að nýju í mars 2026 og 2027.

Yfirlýsing launa- og forsendunefndar er birt hér fyrir neðan.

Kauptaxtaauki tekur gildi 1. apríl

Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum frá ASÍ og SA, kom saman til fyrsta fundar föstudaginn 7. mars. Á fundinum var úrskurðað að kauptaxtaauki virkjist frá og með 1. apríl næstkomandi.

Kauptaxtaaukinn felur í sér að kauptaxtar kjarasamninga hækki um 0,58% frá og með 1. apríl og skýrist af því að launavísitala á almennum markaði hækkaði umfram umsamdar taxtahækkanir viðmiðunartaxtans á fyrsta tímabili stöðugleikasamningsins.

Nefndinni, sem starfar samkvæmt kjarasamningum á árunum 2024-2028, ber að fylgjast með framvindu efnahagslífs og mögulegum áhrifum á markmið samninga um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Nefndinni ber jafnframt að leggja mat á samningsforsendur í september 2025 og september 2026.

Verðbólga gengið niður og kaupmáttur aukist

Meginmarkmið samninganna er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Verðbólga mældist um 8% þegar undirbúningur kjarasamninga hófst haustið 2023. Forsendunefndin er sammála um að árangur samninganna hafi verið merkjanlegur, verðbólga mælist í dag 4,2% en 2,7% ef horft er fram hjá áhrifum húsnæðisverðs. Kaupmáttur launa hefur aukist á fyrsta ári samnings.

Seðlabankinn hóf vaxtalækkunarferli í október síðastliðnum og hafa stýrivextir lækkað um 1,50 prósentur frá gerð samninga. Á sama tíma hefur aðhald peningastefnunnar aukist og raunvextir hækkað.

Aukin óvissa um efnahagshorfur

Forsendur eru fyrir áframhaldandi hjöðnun verðbólgu á næstu mánuðum og þar með frekari lækkun vaxta. Hins vegar hefur alþjóðleg óvissa um efnahagshorfur aukist og hætta á að Ísland verði fyrir áhrifum af vaxandi átökum á alþjóðavettvangi og viðskiptastríðum. Forsendunefndin telur mikilvægt að stjórnvöld, Seðlabanki Íslands og fyrirtæki vinni áfram að markmiðum samninganna og skapi þannig forsendur fyrir áframhaldandi minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Þar telur nefndin brýnt að ríki og sveitarfélög vinni með peningastefnunni, gæti hófs í álagningu gjalda og taki markviss skref í íbúðauppbyggingu.