Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 08.03.2023
Kosningar til formanns og stjórnar hafnar
Rafrænar kosningar meðal félagsfólks VR vegna kjörs formanns og stjórnar VR hófust kl. 09:00 í morgun, miðvikudaginn 8. mars. Kosningunum lýkur kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 15. mars 2023.
Valið er milli tveggja frambjóðenda til formanns VR og 16 frambjóðenda til stjórnar VR.