Almennar fréttir - 09.03.2020
Kosning til stjórnar VR 2020 - 2022
Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR vegna kjörs til sjö sæta í stjórn VR, skv. 20 gr. laga félagsins, hófst í dag kl. 09:00, mánudaginn 9. mars, og lýkur kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 13. mars. Atkvæðagreiðslan er rafræn, smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.
Valið er milli 13 frambjóðenda til stjórnar VR. Merkja skal við mest 7 frambjóðendur í stjórnarkosningum.
Hvernig þú kýst stjórn VR
- Smelltu á „Kosið um stjórn VR 2020 - 2022".
- Skráðu þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
- Atkvæðaseðill opnast með upplýsingum um hvernig þú átt að kjósa.
Ef þú hefur ekki Íslykil eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér eða með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700.
Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar og smelltu hér til að sjá lista yfir frambjóðendur.
Kjörstjórn VR