Ung1

Almennar fréttir - 21.05.2024

Kosning í Ungliðaráð VR

Kosning þriggja fulltrúa í Ungliðaráð VR er hafin og stendur frá kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 21. maí til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 24. maí 2024. Samkvæmt starfsreglum ráðsins sitja 6 aðilar í ráðinu, stjórn VR skipar þrjá en félagsfólk á aldrinum 16 – 35 ára kýs þrjá.

Auglýst var eftir framboðum og rann framboðsfrestur út þann 16. maí. Alls buðu sig fram 15. Jöfn kynjaskipting skal vera í ráðinu. Þar sem stjórn VR hefur skipað tvo karla og eina konu í ráðið er nú kosið um einn karl og tvær konur.

Allt félagsfólk í VR á aldrinum 16 til 35 ára getur tekið þátt í kosningunum. Aðgangur að rafrænum atkvæðaseðli hefur verið sendur til kosningabærra félaga með skráð netföng hjá VR. Félagsfólki sem ekki fær sendan aðgang að rafrænum atkvæðaseðli en telur sig eiga rétt á að kjósa, er bent á að senda erindi þess efnis til unglidarad@vr.is.

Sjá hér upplýsingar um frambjóðendur.