Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Utsynismyndir 6

Almennar fréttir - 21.12.2022

Kjarasamningar VR samþykktir

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks VR í kosningu um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda liggja nú fyrir.
Kjarasamningur VR við SA var samþykktur með 81,91% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 7.808 VR félagar og nei sögðu 1.504 eða 15,78%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 220 eða 2,31%. Á kjörskrá um samning VR og SA voru 39.115 VR félagar og greiddu 9.532 atkvæði, og var kjörsókn því 24,37%.

Kjarasamningur VR við FA var samþykktur með 85,17% atkvæða, en já sögðu 247 VR félagar og nei 38, eða 13,10%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 5 eða 1,72%. Á kjörskrá um samning VR og FA voru 939 VR félagar og greiddu 290 atkvæði, og var kjörsókn því 30,88%.

Atkvæðagreiðslan var rafræn á vr.is og var haldin dagana 14.- 21. desember 2022.