Almennar fréttir - 31.01.2025
Hvernig veit ég hvað er satt? - Fyrirlestur á Mínum síðum
Rafræni fyrirlesturinn um Hvernig veit ég hvað er satt er nú aðgengilegur félagsfólki VR á Mínum síðum VR.
Fyrirlesari er Elsa Haraldsdóttir, doktorsnemi í heimspeki og heimspekikennari.
Í þessum áhugaverða fyrirlestri fer Elsa yfir nokkur góð atriði sem geta nýst öllum við að leggja mat á upplýsingar og efni sem miðlað er til okkar. Hvernig veit ég hvað er satt? Hvenær skiptir það máli hvort eitthvað sé satt eða ekki? Markmið fyrirlestursins er að veita hagnýtar upplýsingar um gagnrýna hugsun og notkun hennar ásamt því hvernig er hægt að tileinka sér hana, eða þá kynna sér málið frekar.
Elsa Haraldsdóttir er doktorsnemi í heimspeki og heimspekikennari við Háskóla Íslands. Sérsvið hennar eru gagnrýnin og heimspekileg hugsun, hagnýt rökfræði, hagnýt siðfræði og heimspeki menntunar.