Almennar fréttir - 24.05.2022
Hver spáir fyrir framtíðarhæfni starfsfólks?
Alþjóðaefnahagsráðið (The World Economic Forum) er sjálfstæð alþjóðastofnun sem sérhæfir sig í greiningu á framtíðarhæfni á vinnumarkaði. Stofnunin var sett á laggirnar árið 1971 og er staðsett í Genf í Sviss. Hún er ekki bundin neinum sérhagsmunasamtökum og starfar ekki í hagnaðarskyni. Starfsfólk hennar reynir að gæta hlutleysis í störfum sínum og mikið kapp er lagt á að vinna út frá siðferðislegum- og vitsmunalegum heilindum.Stofnunin vinnur í samstarfi við opinbera- og einkageirann við að greina framtíðarhæfni starfsfólks í takti við örar breytingar á vinnumarkaði. Greining á framtíðarhæfni er til þess gerð að fræðsluaðilar og menntastofnanir geti aðlagað námsefni sitt og framboð að þeirri þörf og hæfni sem viðeigandi er á vinnumarkaði hverju sinni.
Stofnunin fær til liðs við sig leiðtoga sem eru leiðandi í stjórnmálum, viðskiptum og ólíkum menningargeirum til að ákveða hvaða málefnum hinar ýmsu atvinnugreinar ættu að huga að, nær og fjær, svæðisbundið sem og á heimsvísu. Einnig er að unnið að því að leita lausna á þeim flóknu áskorunum sem blasa við heiminum hverju sinni en stofnunin vinnur að því að ýta undir frumkvöðlastarfsemi sem getur bætt almannahagsmuni á heimsvísu.
Alþjóðaefnahagsráðið gefur út skýrslu á nokkurra ára fresti sem kallast „The Future of Jobs Report”. Í þessum skýrslum, kortleggur ráðið framtíð starfa, í samstarfi við atvinnurekendur og birtir þá hæfniþætti sem munu teljast mikilvægir fyrir störf framtíðarinnar, tækninýjungar og innleiðingu þeirra í alþjóðasamfélaginu út frá þeim atburðum eða breytingum sem hafa átt sér stað í gegnum tíðina.
10 mikilvægustu hæfniþættirnir 2020
- Hæfni til að leysa úr flóknum vandamálum (e. Complex Problem Solving)
- Gagnrýnin hugsun (e. Critical Thinking)
- Sköpunargleði (e. Creativity)
- Mannauðsstjórnun (e. People Management)
- Hæfni til að samhæfa störf sín við aðra (e. Coordinating with Others)
- Há tilfinningagreind (e. Emotional Intelligence)
- Búa yfir góðri dómgreind og hæfni til ákvarðanatöku (e. Judgment and Decision Making)
- Þjónustulund (e. Service Orientation)
- Hæfni í samningaviðræðum (e. Negotiation)
- Sveigjanleiki í hugsun (e. Cognitive Flexibility)
10 mikilvægustu hæfniþættirnir 2025
- Greinandi hugsun- og nýsköpun (e. Analytical thinking and innovation)
- Virk þátttaka í lærdómsferli og að kynna sér lærdómsaðferðir (e. Active learning and learning strategies)
- Hæfni til að leysa úr flóknum vandamálum (e. Complex problem-solving)
- Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni (e. Critical thinking and analysis)
- Sköpunargleði, frumleiki og frumkvæði (e. Creativity, originality and initiative)
- Leiðtogahæfni og geta til að hafa félagsleg áhrif (e. Leadership and social influence)
- Tækninotkun, tæknivöktun og tæknistjórnun (e. Technology use, monitoring and control)
- Tæknihönnun og forritun (e. Technology design and programming)
- Seigla, streituþol og sveigjanleiki (e. Resilience, stress tolerance and flexibility)
- Rökhugsun, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að vinna úr flóknum hugmyndum (e. Reasoning, problem-solving and ideation)
Í þessum skýrslum má meðal annars finna útlistun á 10 hæfniþáttum starfa sem Alþjóðaefnahagsráðið telur mikilvæga í framtíðinni. Sem dæmi má nefna að getan til að leysa úr flóknum vandamálum er einn þeirra hæfnisþátta sem atvinnurekendur trúa að muni áfram vera mikilvægur á næstu árum, en þessi hæfniþáttur hefur verið á lista hjá stofnuninni yfir mikilvæga hæfniþætti síðan árið 2016.
Aðrir hæfniþættir sem eru að ryðja sér til rúms lúta meðal annars að sjálfsstjórn starfsfólks. Má þar nefna virka þátttöku í lærdómsferli, seiglu, streituþol og sveigjanleika. Hér fyrir neðan má sjá hæfniþætti síðustu og komandi ára samkvæmt Alþjóðaefnahagsráðinu:
Þar sem margir þessara hæfniþátta snúa að sjálfsstjórn og persónulegri hæfni fólks þá er brýnt að hver og einn einstaklingur taki þátt í eigin starfsþróun, hugi að hæfni sinni og hafi þessa mikilvægu hæfniþætti sér til hliðsjónar.
Þessi grein birtist fyrst í 1. tbl. VR blaðsins 2022. Smelltu hér til að lesa blaðið.