Almennar fréttir - 25.11.2020
Heimilin skilin eftir í aðgerðum stjórnvalda
Stjórnvöld stæra sig af því að hafa síðustu misseri kynnt úrræði sem nema um 340 milljörðum króna til að tryggja viðspyrnu í kjölfar Covid faraldursins. Langstærstum hluta þessa fjármagns er beint til fyrirtækjanna, um 300 milljörðum. Það sem af er hafa fyrirtækin nýtt úrræði fyrir a.m.k. 80 milljarða, ýmist í formi beins stuðnings, ábyrgða eða tilfærslna (m.v. birtar tölur um nýtingu).
Beinn stuðningur við einstaklinga og heimili er um 7 milljarðar króna (m.v. birtar tölur um nýtingu úrræðanna). Eins og það sé ekki nógu slæmt að svo litlir fjármunir hafi skilað sér til heimilanna í samanburði við fyrirtækin þá hafa einstaklingar og heimili gengið á eigin sparnað með því að taka út séreignarsparnað sinn svo nemur 21 milljarði króna. Hafa verður í huga að séreignarsparnaður sem tekinn er út vegna Covid er staðgreiðsluskyldur, þegar upp er staðið munu um 7,5 milljarðar skila sér til ríkis og sveitarfélaga í formi skatttekna.
Miðað við þau gögn sem liggja fyrir virðast stjórnvöld því hafa haft beinar tekjur upp á 600 milljónir króna umfram þær „björgunaraðgerðir” sem hafa runnið til heimilanna í landinu, fram að þessu! Þau úrræði sem stjórnvöld hafa boðið heimilum hafa verið almenn, en ekki sérsniðin eins og alþjóðastofnanir hafa mælst til að séu nýtt. Slík ráðstöfun skattfjár getur vart talist ábyrg og efasemdir eru um að þau hafi verið áhrifarík, í ljósi þess mikla sparnaðar sem heimilin hafa mátt taka út til að bjarga sér sjálf út úr erfiðum aðstæðum.
Þá er spurningin hvort við höfum virkilega ekkert lært? Er efnahagshrunið, sem hér varð og hafði skelfilegar afleiðingar fyrir heimilin í landinu, virkilega gleymt og grafið? Ef það var eitthvað sem við hefðum átt að læra af því þá var það sá gífurlegi mannlegi harmleikur sem fylgdi í kjölfar þess að allir „björgunarpakkar” miðuðu við atvinnu- og fjármálalífið og heimilin og einstaklingarnir gleymdust.
Við megum ekki lenda aftur í þessari gryfju og VR krefst þess að stjórnvöld og fjármálastofnanir hlusti og hefji raunverulegar aðgerðir til hjálpar svo hér verði ekki sama niðurbrot og eymd sem fylgdi í kjölfar síðasta hruns. Snúum þessu við, lærum af reynslunni og setjum í þetta sinn mesta kraftinn í að hjálpa einstaklingum og heimilunum. Þau eru þjóðin. Stjórnvöld eru til fyrir þjóðina en ekki öfugt.
Vissulega má segja, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu, að mörg úrræði fyrir einstaklinga eru ýmist ekki komin til framkvæmda eða hugsuð til lengri tíma, s.s. framlenging tekjutengdra atvinnuleysisbóta, ýmis námsúrræði og fjölmörg af þeim félagslegu úrræðum sem hafa verið kynnt. Þá hafa önnur úrræði án efa verið nýtt án þess að upplýsingar um það hafi verið birtar. Þetta á hins vegar einnig við um fyrirtækin. Það verður ekki framhjá því litið að skatttekjur af úttekt séreignarsparnaðar einstaklinga vega upp á móti þeim beina stuðningi sem heimilin hafa fengið í þessum faraldri.
Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR.