Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 02.02.2017
Hefur þú áhuga á að starfa í forystu VR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
- Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, sjö sæti í stjórn og þrjú til vara. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns og 15 vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar.
- Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 9. febrúar 2017.
Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á vef VR þar sem eyðublöð vegna framboða eru aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar um framboð til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
2. febrúar 2017
Kjörstjórn VR