Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 28.09.2017
Hækkun á styrkjum í starfsmenntasjóðum um næstu áramót
Stjórnir starfsmenntasjóða sem VR á aðild að hafa samþykkt hækkun á styrkjum til félagsmanna sem tekur gildi um næstkomandi áramót 2017/2018.
Veittur er hámarksstyrkur allt að 130.000 kr. á ári.
- 90% af námi/starfstengdu námskeiðsgjaldi/ráðstefnugjaldi – hámark 130 þúsund.
- 50% af tómstund – hámark 30 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).
- 50% af ferðastyrk vegna náms – hámark 40 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að félagsmaður greiði námsgjöld/námskeiðsgjöld/ráðstefnugjöld.
Uppsöfnun einstaklinga til þriggja ára verður því 390 þúsund fyrir einu samfelldu námi.
Veittir fyrirtækjastyrkir munu að auki hækka í samræmi við styrki til einstaklinga um næstu áramót.