Almennar fréttir - 31.03.2023
Greitt inn í VR varasjóð
Á aðalfundi VR, sem haldinn var 29. mars sl., var samþykkt að framlag í VR varasjóð verði samtals 905 milljónir kr. fyrir árið 2022.
Varasjóðinn má nýta í ýmis æfingagjöld eins og í líkamsrækt, sund og golfklúbba og við kaup á hjálpartækjum tengdum líkamsrækt eins og hlaupaskóm, golfkylfum og fleiru. Þá er hægt að nýta sjóðinn í ýmsa læknistengda þjónustu eins og tannlækni, sálfræðikostnað, laseraðgerðir og fleira. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun.
Þrjár undantekningar eru á staðgreiðsluskyldum greiðslum:
- Líkamsrækt og endurhæfing sem er sambærileg og önnur íþróttaiðkun að hámarki kr. 71.500 á ári (m.v. árið 2023)
- Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 67.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
- Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.
Nánari upplýsingar um varasjóðinn má sjá hér.
Athugið að endurgreiðsla hvers VR félaga fer eftir réttindainneign hans. Stöðu og umsóknir í VR varasjóð má finna á Mínum síðum.