Almennar fréttir - 02.04.2019
Greitt inn í VR varasjóð
Á aðalfundi VR, sem haldinn var 27. mars sl, var samþykkt að framlag í VR varasjóð verði samtals 806.303.461 krónur fyrir árið 2018. Af þeim voru 22.570.449 krónur vegna nýrra félagsmanna sem komu inn frá VS.
Varasjóðinn má nýta í ýmis æfingagjöld eins og í líkamsrækt, sund og golfklúbba og við kaup á hjálpartækjum tengdum líkamsrækt eins og hlaupaskóm, golfkylfum og fleiru. Þá er hægt að nýta sjóðinn í ýmsa læknistengda þjónustu eins og tannlækni, sálfræðikostnað, laseraðgerðir og fleira. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun.
Þrjár undantekningar eru á staðgreiðsluskyldum greiðslum:
- Líkamsrækt og endurhæfing (sjúkraþjálfun, nudd, nálastungur og kírópraktor) að hámarki kr. 60.000 á ári (m.v. árið 2019)
- Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 55.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
- Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.
Nánari upplýsingar um varasjóðinn má sjá á vef VR hér.
Athugið að endurgreiðsla hvers félagsmanns fer eftir réttindainneign hans. Stöðu og umsóknir í VR varasjóð má finna á Mínum síðum.