Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 28.02.2018
Frambjóðendur til stjórnar VR kynna sig
Frambjóðendur til stjórnar VR kjörtímabilið 2018-2020 kynna sig og áherslur sínar á félagsfundi VR á Nauthól, Nauthólsvegi 106 mánudaginn 5. mars kl. 19:30. 27 aðilar bjóða sig fram til sjö sæta í stjórn, sjá nánari upplýsingar um frambjóðendur.
Allir VR félagar velkomnir.
Félagsmenn sem komast ekki en vilja fylgjast með geta horft á kynningarnar á Mínum síðum.