Almennar fréttir - 02.01.2009
Frá kjörstjórn VR
Kjörstjórn VR hefur sent frá sér svohljóðandi tilkynningu vegna framboðs til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs:
"Samþykkt kjörstjórnar VR
Alvarlegur misskilningur hefur komið upp hvað varðar reglur skv. lögum VR um framboð til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs félagsins í tengslum við framboðsfrest sem auglýstur var til kl. 12:00 á hádegi 22. desember sl. Ástæða er til að ætla að þetta hafi orðið til þess að einhverjir félagsmenn VR sem höfðu áhuga á að bjóða sig fram til forystu í félaginu skiluðu ekki inn framboðum fyrir tilsettan tíma.
Í ljósi þess sem að framan segir hefur kjörstjórn VR ákveðið að framlengja framboðsfrest til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs sbr. 1. mgr. 20. gr. laga VR til kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 12. janúar 2009.
Kjörstjórn VR mun láta birta auglýsingar í dagblöðum um framlengdan framboðsfrest eins fljótt og auðið er. Jafnframt verður auglýsingin birt á heimasíðu VR og send á trúnaðarmenn félagsins til upplýsingar.
2. janúar 2009.
Kjörstjórn VR"