Almennar fréttir - 29.10.2024
Formaður VR í leyfi frá störfum
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, verður í leyfi frá störfum fram yfir Alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi en hann er sem kunnugt er í framboði til þings. Ragnar kynnti stjórn VR þessa ákvörðun sína á fundi í kvöld, 29. október. Varaformaður VR, Halla Gunnarsdóttir, mun sinna störfum formanns á meðan hann er í leyfi.