Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 13.03.2017
Fjögur þúsund hafa kosið hjá VR
Um kl. 9:00 í morgun, 13. mars, höfðu rétt um fjögur þúsund félagsmenn VR kosið í allsherjaratkvæðagreiðslu til formanns og stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2017 til 2019 en hún hófst kl. 9:00 að morgni 7. mars. Á kjörskrá er 32.721 félagsmaður. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi 14. mars.
Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn. Atkvæðagreiðsla er rafræn, sjá hér aðgang að atkvæðaseðli og nánari upplýsingar um frambjóðendur.