Hlutlaus Leikskolamynd

Almennar fréttir - 29.01.2025

Fjarðabyggð gegn kjarasamningum

Fyrir tæpu ári síðan voru undirritaðir langtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði þar sem launafólk undirgekkst afar hóflegar launahækkanir á verðbólgutímum gegn því að atvinnurekendur héldu aftur af verðhækkunum og hið opinbera aftur af gjaldskrárhækkunum. Stóðu vonir til þess að þar með myndu skapast aðstæður til lægri verðbólgu og lækkunar vaxta og að kaupmáttur launafólks yrði varinn.

Allt að 62% hækkun á leikskólagjöldum

Fyrir sveitarfélög var miðað við að hámarki 3,5% hækkun á gjaldskrám og að sérstaklega ætti að horfa til þess að verja barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Vissulega er það áskorun fyrir fjölmörg sveitarfélög að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og hafa sum reynt að teygja sig út fyrir rammann. Sú hækkun sem Fjarðabyggð hefur boðað á leikskólagjöldum sker sig hins vegar úr og ef bæjaryfirvöld hverfa ekki frá áformum sínum mun launafólk með leikskólabörn í sveitarfélaginu þurfa að taka á sig 24–62% hækkun á leikskólagjöldum, eftir lengd vistunartíma.

Á fundi AFLs og VR með bæjarráði og bæjarstjóra Fjarðarbyggðar 27. janúar sl. kom skýrt fram að breytingunum væri ætlað að leysa mönnunarvanda leikskóla í sveitarfélaginu með því að fækka þeim klukkustundum og dögum sem börn eru í leikskóla. Er vísað til „fjárhagslegs hvata“ fyrir foreldra sem geta haft börn sín skemur og sjaldnar í leikskóla en í raun er um að ræða fjárhagslega refsingu fyrir foreldra sem vinna fulla vinnu og þarfnast leikskólavistar fyrir börn sín í samræmi við það. Til viðbótar við sex starfsdaga og tuttugu skyldubundna sumarfrísdaga er nú gert ráð fyrir tuttugu „skráningardögum“ sem foreldrum ber að greiða sérstakt gjald fyrir. Samanlagt eru þetta því um 46 dagar á ári, en rétt er að taka fram að ungt launafólk á almennum vinnumarkaði er alla jafna með 24 orlofsdaga á ári. Enn fremur kemur launafólk á almennum markaði yfirleitt úr fæðingarorlofi án orlofsréttinda þar sem ávinnsla orlofs stöðvast í fæðingarorlofi. Þetta setur því bæði mikla fjárhagslega og andlega pressu á foreldra ungra barna.

Fjarðabyggð endurskoði ákvörðun sína

Ljóst er að við ákvörðun sína tók Fjarðabyggð hvorki mið af gildandi kjarasamningum né af þeim áhrifum sem stefnumótunin getur haft á launafólk og á samfélagsgerðina. Fjárhagslegum byrðum er velt umhugsunarlaust yfir á herðar foreldra ungra barna og áhrif á jafnrétti kynjanna ekki ígrunduð. Bæjaryfirvöld vilja að hækkun frístundastyrks og takmörkun á hækkun fasteignagjalda séu tekin með í reikninginn. Þetta eru ágætar ákvarðanir út af fyrir sig, en þær breyta engu um hækkun leikskólagjalda sem leggst á ákveðinn hóp samfélagsins, það er að segja fullvinnandi foreldra ungra barna.

Við berum vonir til þess að bæjarstjórn Fjarðabyggðar taki ákvörðun sína til endurskoðunar og vindi ofan af fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum. Verði svo ekki, er ljóst að sveitarfélagið gengur gegn gildandi kjarasamningum og stuðlar að ósátt á vinnumarkaði.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs.
Greinin birtist fyrst á visir.is