Workplace With Computer In The Room 3XCYUB8 Copy

Almennar fréttir - 29.08.2024

Félagsfundur VR 5. september

Félagsfundur VR verður haldinn með rafrænum hætti fimmtudaginn 5. september kl. 12:00 á hádegi.

Fundarefni er kosning fulltrúa félagsins til setu á 46. þing ASÍ sem fer fram dagana 16. - 18. október næstkomandi.

Yfirskrift þingsins er Sterk hreyfing – sterkt samfélag. Dagskrá og þingskjöl má finna á þingvef ASÍ hér.

Ef óskað er eftir túlkun yfir á ensku, vinsamlegast látið okkur vita með tölvupósti á netfangið anna@vr.is.

Skráningu á fundinn má finna hér. Hlekkur á fundinn verður sendur í tölvupósti.