Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 16.12.2022
Fékkst þú ekki örugglega desemberuppbót?
Samkvæmt kjarasamningum VR á að greiða desemberuppbót í síðasta lagi þann 15. desember ár hvert.
Desemberuppbót skv. samningum VR er 98.000 kr. fyrir árið 2022. Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Sjá ítarlegri upplýsingar um desemberuppbótina og reiknivél til að reikna hana út.