Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
3H5A2283

Almennar fréttir - 14.10.2022

Ertu á leið í nám?

Félagsfólk VR getur sótt um styrki vegna:

Náms – greidd eru 90% af starfstengdu námi, námskeiði eða ráðstefnu. Styrkur getur numið allt að 130.000 kr. á hverju almanaksári, sem er jafnframt hámarksstyrkur.

Tómstundanámskeiða – greidd eru 50% af tómstundanámskeiði. Styrkur getur numið allt að 30.000 kr. á hverju almanaksári (dregst frá hámarksstyrk).

Ferðakostnaðar vegna starfstengds náms, námskeiðs eða ráðstefnu. Greidd eru 50% af ferðastyrk, sem getur numið allt að 40.000 kr. á hverju almanaksári (dregst frá hámarksstyrk).

Ef ekki hefur verið sótt um starfstengdan styrk í þrjú ár í röð er hægt að sækja um uppsafnaðan styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi, að hámarki 390.000 kr., fyrir einu samfelldu námi.

VR er aðili að tveimur starfsmenntasjóðum; Starfsmenntasjóði verslunar og skrifstofufólks (SVS) og Starfsmenntasjóði verslunarinnar (SV). Réttindi til styrks byggja á greiddu iðgjaldi atvinnurekanda sl. 12 mánuði. Réttindin eru hlutfallsleg ef laun eru lægri en byrjunarlaun.

VR félagar geta séð réttindi sín í sjóðum og sótt um rafrænt á Mínum síðum á vr.is