Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 16.10.2019
Ertu á leið í nám?
Félagsmenn VR geta sótt um styrki vegna:
- Náms – greitt er 90% af starfstengdu námi, námskeiði eða ráðstefnu. Styrkur getur numið allt að 130.000 kr. á hverju almanaksári.
- Tómstundanámskeiða – greitt er 50% af námskeiðsgjaldi. Styrkur getur numið allt að 30.000 kr. á hverju almanaksári.
- Ferðakostnaðar vegna starfstengds náms, námskeiðs og ráðstefnu – Greitt er 50% af reikningi. Styrkur getur numið allt að 40.000 kr. á hverju almanaksári.
Ef ekki hefur verið sótt um starfstengdan styrk í þrjú ár í röð er hægt að sækja um uppsafnaðan styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi, að hámarki 390.000 kr., fyrir einu samfelldu námi.
Félagsmenn geta séð réttindi sín í sjóðum og sótt um rafrænt á Mínum síðum á vr.is