Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 28.06.2019
Ert þú að vinna í sumar?
Réttindi ungs fólks á vinnumarkaði
Þegar skólarnir klárast á vorin fer unga fólkið flest í sumarvinnu en með því að vinna á sumrin fá þau dýrmæta starfsreynslu á vinnumarkaði. En hvað þarf að hafa í huga þegar komið er út á vinnumarkaðinn?
Hér eru nokkur mikilvæg atriði sem þú vilt vera með á hreinu:
- Nauðsynlegt er að gera ráðningarsamning og lesa hann yfir með foreldrum áður en þú skrifar undir!
- Laun eru greidd fyrsta dag hvers mánaðar eftir að þeim mánuði lýkur sem laun eru greidd fyrir.
- Launaseðill er mikilvægur! – Mikilvægt er að fara yfir launataxtann og unna tíma
- Prufutími á alltaf að vera greiddur – Þú átt ekki að vinna ókeypis!
- Jafnaðarkaup – Það er ekki samið um jafnaðarkaup í kjarasamningum
- Þú átt að fá greitt stórhátíðarálag þegar þú vinnur á stórhátíðardögum.