Almennar fréttir - 05.12.2023
Breyttur skilatími umsókna vegna hátíðanna
Félagsfólk vinsamlega athugið að vegna hátíðanna þarf að skila umsóknum um styrk úr Sjúkrasjóði, VR varasjóði og starfsmenntasjóðum í síðasta lagi miðvikudaginn 13. desember svo greiðsla geti borist fyrir áramót.
Athugið að til að nýta rétt í starfsmenntasjóði fyrir árið 2023 þarf umsókn að berast fyrir 13. desember.