Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 16.08.2019
Átt þú erindi í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna?
VR auglýsir eftir stjórnarmönnum í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna kjörtímabilið 2019 - 2023.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn kynningarbréf með rökstuðningi, starfsferilsskrá og yfirlýsingu sem finna má www.vr.is á skrifstofu VR fyrir kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 2. september 2019, merkt „Umsókn LIVE“, eða á umsokn@vr.is.
Þeir sem gefa kost á sér skulu:
- Vera launamenn sem greiða skyldubundið iðgjald í Lífeyrissjóð verzlunarmanna, æskilegt er að þeir séu félagsmenn í VR
- Ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar
- Búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stjórnarstörfum á tilhlýðilegan hátt skv. 6. gr. reglna FME nr. 180/2013
- Uppfylla skilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða um fjárhagslegt sjálfstæði, óflekkað mannorð o.fl. Auk þess þurfa þeir að gangast undir munnlegt hæfismat hjá FME sbr. 16. gr. reglna FME nr. 180/2013.
Við mat á hæfi umsækjenda verður litið til reynslu og þekkingar, m.a. á lífeyrismálum, kjarasamningum, stjórnun, áætlanagerð, lögfræði og fjármálamörkuðum.
Nánari upplýsingar og drengskaparyfirlýsing sem þarf að skila með umsókn eru á www.vr.is/live