Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 16.12.2022
Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning hjá innanlandsflugi Icelandair
Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning VR/LÍV og SA fyrir hönd innanlandsflugs Icelandair hefst kl. 9:00 mánudaginn 19. desember.
Atkvæðagreiðslan tekur til almenns skrifstofufólks og þeirra sem vinna vaktavinnu í farþegaafgreiðslu og þjónustu hjá Flugfélagi Íslands.
Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 21. desember. Atkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofum félaganna um allt land. Hún stendur yfir í átta stundir á dag, mánudag og þriðjudag.
Kynntu þér kjarasamninginn hér.
Kjörstjórn VR
16.12.2022