Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 16.12.2022
Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning hjá farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair
Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning VR og SA fyrir hönd Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefst kl. 9:00 mánudaginn 19. desember. Atkvæðagreiðslan tekur til starfsfólks hjá farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 21. desember.
Atkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofum VR í Reykjavík og Reykjanesbæ. Hún stendur yfir í átta stundir á dag, mánudag og þriðjudag.
Kynntu þér kjarasamninginn hér.
Kjörstjórn VR,
16. desember 2022