Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 18.05.2021
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi fer fram fimmtudaginn 27. maí nk. kl. 18:00 á Austurvegi 56, Selfossi (3. hæð).
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Gestir fundarins verða Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR.
Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að hafa borist til VR á netfangið vr@vr.is fyrir kl. 18:00 fimmtudaginn 20. maí 2021.