Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 14.05.2018
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi verður haldinn þriðjudaginn 29. maí nk. kl. 19:30 á Austurvegi 56, 2. hæð.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Kosning stjórnar
- Önnur mál.
Gestir fundarins verða Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Stefán Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri VR.
Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að hafa borist til VR á netfangið vr@vr.is fyrir kl. 19:00 mánudaginn 21. maí 2018.
Boðið verður upp á mat í byrjun fundar svo gott væri að fundarmenn skrái sig með því að senda póst á asta@vr.is eða hringi í síma 510-1700 fyrir kl. 16:00 mánudaginn 28. maí nk.