Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 23.06.2021
Ársfundur deildar VR á Austurlandi
Ársfundur deildar VR á Austurlandi verður haldinn á Hótel Valaskjálf, í salnum Þingmúla, fimmtudaginn 24. júní 2021 kl. 18.30.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, verður gestur fundarins.
Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að hafa borist skrifstofu félagsins að Kaupvangi 3b á Egilsstöðum eða á erla@vr.is fyrir kl. 12:00, fimmtudaginn 24. júní.
Þar sem boðið verður upp á veitingar er gott að fundargestir skrái sig með því að senda póst á erla@vr.is fyrir kl. 10:00, fimmtudaginn 24. júní.