Almennar fréttir - 05.01.2022
Álag á vef vegna bókana orlofshúsa í dag
Félagsfólk VR vinsamlega athugið að búast má við álagi á vef og símkerfi félagsins frá kl. 19:00 í dag, 5. janúar þegar opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2022.
Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þá er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700 frá kl. 19:00. Sökum fjölda Covid smita í samfélaginu verður ekki boðið upp á aðstoð á skrifstofum VR að þessu sinni.
Athugið að innskráning á Mínar síður frá kl. 16:00 - 23:00 miðvikudaginn 5. janúar leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.