Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 07.01.2020
Álag á vef vegna bókana orlofshúsa
Félagsmenn VR vinsamlega athugið að búast má við álagi á vef og símkerfi félagsins frá kl. 19:00 í dag, 7. janúar þegar opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2020.
Athugið að innskráning á Mínar síður VR frá kl. 16:00 - 23:00 í dag, 7. janúar, leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.