Almennar fréttir - 18.03.2022
Aðalfundur VR 2022
Aðalfundur VR verður haldinn mánudaginn 28. mars 2022 kl. 19:30 á Hilton Reykjavík Nordica.
Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur og fjarfundur í senn. Félagar sem ætla að sækja fundinn verða að skrá sig fyrirfram fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi.
Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, reglugerðar breytingar og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð.
Skráning, dagskrá og frekari upplýsingar er að finna á vr.is/adalfundur