Greiðslur úr VR varasjóði
Endurgreiðsla úr VR varasjóði fer eftir réttindainneign hvers og eins VR félaga.
Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Staðgreiðsla skatta er tekin af styrkupphæð úr VR varasjóði, skv. skattþrepi 1.
Þrjár undantekningar eru frá því og eru þær tilteknar hér að neðan:
- Líkamsrækt og endurhæfing sem er sambærileg og önnur íþróttaiðkun að hámarki kr. 77.000 á ári (m.v. árið 2024)
- Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 72.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
- Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.
Hverja greiðslukvittun má aðeins nota einu sinni en hún má vera allt að 2ja ára þegar sótt er um endurgreiðslu.
Í hvað get ég nýtt sjóðinn?
- Æfingagjöld t.d. í golfklúbba, hjá íþróttafélögum, tímar hjá einkaþjálfara, líkamsræktarnámskeið, skokk- og gönguhópar, kort í sund og líkamsræktarstöðvar.
- Endurhæfingarkostnaður s.s. meðferðir hjá sjúkraþjálfara, nuddara og kírópraktor ásamt nálastungumeðferð.
- Greiðsla á gistikostnaði í orlofi. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
- Greiðsla vegna starfstengdra námskeiða- og skólagjalda (skattfrjáls, sjá nánari upplýsingar fyrir neðan).
- Kaup á hjálpartækjum tengt líkamsrækt s.s. hjól, golfkylfur, hlaupaskór, íþróttafatnaður o.fl.
- Kaup á hjálpartækjum s.s. gleraugum, linsum, heyrnartækjum, innleggjum í skó og fl.
- Tannlæknaþjónusta.
- Læknisþjónusta, þar með talið lyfjakostnaður, röntgenmyndatökur, sýnatökur, laseraðgerðir og fleira.
- Sálfræðikostnaður og viðtöl hjá geðlæknum.
- Tekjuskerðing vegna fæðingarorlofs, atvinnuleysis eða heilsubrests.
- Við starfslok eftir að 60 ára aldri hefur verið náð.
- Orlofsþjónusta s.s. flug, bílaleigubílar, pakkaferðir.
- Kaupa á líf-, slysa- og sjúkdómatryggingum.
Mikilvægt að hafa í huga
Greiðslur úr sjóðnum sem nýttar eru til starfsnáms eru undanþegnar staðgreiðslu.
Í þeim tilfellum þar sem styrkir eru ekki skattskyldir þarf að færa kostnað til frádráttar á móti styrk á skattframtali. Hér getur þú nálgast leiðbeiningar og nánari upplýsingar.
Þá viljum við vekja athygli á því að atvinnuleitendum ber að gefa upp styrki frá stéttarfélögum til Vinnumálastofnunar. Einnig bendum við lífeyrisþegum á að greiðslur ber að tilkynna til Tryggingastofnunar.