Styrkir vegna starfstengdra námskeiða og náms

Með umsókn skal fylgja

  • Greiddur reikningur skal vera á nafni VR félaga þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing og nafn og kennitala fræðsluaðila. Greiddur reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða og gefinn út meðan umsækjandi var VR félagi. 
  • Staðfesting á greiðslu, t.d. skjámynd úr heimabanka. Athugið: Eingöngu er tekið við staðfestingu á millifærslum/greiðslukorti úr íslensku bankakerfi. Ekki er tekið við umsóknum greiddum með peningum.
  • Með námi/námskeiði/ráðstefnu sem sótt er erlendis þarf einnig að fylgja lýsing á námi og tengill á námskeiðslýsingu af vefsíðu fræðsluaðila ásamt útskýringu á því hvernig fræðslan tengist starfi umsækjanda.
  • Þegar sótt er um starfstengt námskeið og óljóst er hvernig námskeiðið tengist starfi þá þarf rökstuðningur að fylgja umsókninni.

Mikilvægt er að skila inn öllum umbeðnum gögnum svo afgreiðsla umsóknar tefjist ekki.

Ekki er hægt að sækja um styrk oftar en einu sinni vegna sama reiknings.

Skilgreining og skilyrði námskeiðs

Viðmið sjóðsins varðandi skilgreiningu á hugtakinu námskeið eru eftirfarandi:

  • Skilgreint upphaf og endir
  • Upplýsingar aðgengilegar
  • Opið öllum
  • Fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu
  • Ráðgjöf eða handleiðsla uppfyllir ekki skilyrði námskeiðs

Hvað er styrkhæft?

  • Nám til eininga (t.d. framhaldsskóli, háskóli) 
  • Starfstengd námskeið
  • Starfstengd netnámskeið eða áskrift að vefsíðu/efnisveitu
  • Tungumálanámskeið
  • Sjálfstyrkingarnámskeið innanlands (sem er ekki hluti af meðferðarúrræði)
  • Ráðstefnur sem tengjast starfi umsækjanda
  • Stjórnendaþjálfun/starfstengd markþjálfun.

Sjá nánar hér

  • VR félaga og fyrirtæki gefst kostur á að sækja um sameiginlegan styrk til sjóðsins ef nám VR félaga kostar 200.000 kr. eða meira. Þá er bæði réttur einstaklings og réttur fyrirtækis nýttur við afgreiðslu umsóknar til að hámarka mögulega styrkveitingu frá sjóðnum.

Úthlutunarreglur

Veittur er styrkur fyrir 90% af námi / starfstengdu námskeiðsgjaldi/ ráðstefnugjaldi að hámarki 180.000 kr. á ári.

Ef hvorki hefur verið sótt um starfstengdan styrk né ferðastyrk í starfsmenntasjóðinn í þrjú ár í röð er hægt að sækja um styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi að hámarki 540.000 kr. fyrir einu samfelldu námi. Aðeins er hægt að sækja um styrkinn í einu lagi. Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 mánuði af síðustu 36 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar.

Athugið að réttindi í sjóðnum geta breyst milli mánaða því litið er til félagsgjalda síðustu 12 mánaða við útreikning á réttindum. Öll réttindi falla niður þegar félagsgjöld hafa ekki borist samfellt í sex mánuði.

Mikilvægt að hafa í huga

Greiðslur úr sjóðnum sem nýttar eru til starfsnáms eru undanþegnar staðgreiðslu. Í þeim tilfellum þar sem styrkir eru ekki skattskyldir þarf að færa kostnað til frádráttar á móti styrk á skattframtali. Hér getur þú nálgast leiðbeiningar og nánari upplýsingar. 

Þá viljum við vekja athygli á því að atvinnuleitendum ber að gefa upp styrki frá stéttarfélögum til Vinnumálastofnunar. Einnig bendum við lífeyrisþegum á að greiðslur ber að tilkynna til Tryggingastofnunar.

Þegar nemendafélagsgjöld framhaldsskóla eru greidd ásamt skólagjaldi þá þarf sundurliðun á kostnaði að fylgja með umsókn í sjóðinn. Nemendafélagsgjöld eru ekki styrkhæf og því dregin frá heildarupphæð.