Þegar VR félagi þarf að ferðast meira en 50 km til þess að komast frá heimili til fræðslustofnunar getur hann sótt um ferðastyrk vegna ferða- og gistikostnaðar.
Skila þarf sérumsókn um ferðastyrk sem ávallt skal tengjast námi/námskeiði/ráðstefnu sem VR félaginn sækir. Greiði félagi ekki sjálfur fyrir nám/námskeið/ráðstefnu þarf að skila inn staðfestingu á þátttöku með umsókn um ferðastyrk.
Úthlutunarreglur
Hámarksferðastyrkur er 50.000 kr. á ári og að hámarki 50% af reikningi. Farið er eftir kílómetragjaldi fjármála- og efnahagsráðuneytisins í hvert sinn. Upphæðin dregst frá hámarksstyrk sem er 180.000 kr. á ári.
Sjá nánari upplýsingar hér.
Nota má afgang af 540.000 kr uppsöfnuðum rétti til starfstengds náms í ferðastyrk að hámarki kr. 150.000 en þó ekki hærra en 50% af ferða- og gistikostnaði.
Með umsókn skal fylgja:
- Greiddur reikningur (ekki eldri en 12 mánaða) sem er á nafni VR félaga þar sem fram kemur ferða- og gistikostnaður.
- Staðfesting á greiðslu félaga, t.d. skjámynd úr heimabanka.
- Staðfesting/upplýsingar um nám/námskeið/ráðstefnu
- Ferðist VR félagi á eigin bíl:
- Fjöldi km ásamt dagsetningu ferða
- Staðfesting á mætingu
Þegar um skipulagðar fræðsluferðir er að ræða þá er forsenda þess að geta sótt um ferðastyrk sú að fargjald og gistikostnaður sé greiddur í eigin nafni. Einnig þarf fræðsludagskrá að fylgja með umsókn þar sem greinagóð lýsing á skipulagðri fræðslu liggur fyrir.
Sjá nánar hér.
Skilyrði fyrir veitingu ferðastyrks er:
- Að félagi greiði ferðakostnað í tengslum við starfstengt nám, námskeið, starfstengda heimsókn til fyrirtækja eða ráðstefnu.
- Að félagi skili inn staðfestingu á þátttöku þegar þátttökugjald er ekki innheimt.
- Dagskrá verður að fylgja umsóknum vegna starfstengdra heimsókna í fyrirtæki og ráðstefna.
- Í dagskrá vegna starfstengdra heimsókna í fyrirtæki verður að koma fram hvaða staðir eru heimsóttir, hvert efni kynningar er á hverjum stað og tímasetningar.
- Einnig þarf að skila inn staðfestingu á þátttöku í formi áritaðs bréfs frá yfirmanni eða umsjónarmanni ferðarinnar. Í bréfinu skal ferðinni lýst og tilgangur hennar útskýrður.
- Mikilvægt er að ferða- og gistikostnaður sé sundurliðaður þegar um heildarpakka er að ræða þar sem sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir uppihaldi.
Mikilvægt að hafa í huga
Í þeim tilfellum þar sem styrkir eru ekki skattskyldir er brýnt að færa kostnað til frádráttar á móti styrk á skattframtali. Hér getur þú nálgast leiðbeiningar og nánari upplýsingar.
Þá viljum við vekja athygli á því að atvinnuleitendum ber að gefa upp styrki frá stéttarfélögum til Vinnumálastofnunar. Einnig bendum við lífeyrisþegum á að greiðslur ber að tilkynna til Tryggingastofnunar.