Sjúkrasjóður VR greiðir sjúkradagpeninga eftir að launatekjur falla niður, ef VR félagi verður óvinnufær sökum veikinda eða slysa (undanskilin eru slys vegna vélknúinna ökutækja).
Dagpeningarnir eru greiddir frá þeim tíma þegar samningsbundinni eða lögboðinni launagreiðslu frá atvinnurekanda lýkur. Greitt er að hámarki 210 daga (eða 7 mánuði).
Hafi VR félagi til dæmis unnið í eitt ár hjá sama atvinnurekanda á hann tveggja mánaða veikindarétt. Þegar félagi hefur fullnýtt veikindarétt sinn en veikindin vara lengur, getur VR félagi snúið sér til félagsins og sótt um greiðslur úr Sjúkrasjóði.
Fylgigögn
- Sjúkradagpeningavottorð sem gefið er út á Íslandi.
- Staðfesting atvinnurekanda á hvenær veikindarétti lýkur.
- Afrit af síðasta launaseðli.
Upphæð sjúkradagpeninga
- Sjúkradagpeningar skulu vera 80% af meðallaunum, enda komi ekki greiðsla vegna tímabundinnar örorku samkvæmt ábyrgðartryggingu, fyrir sama tímabil.
- Greiðslur sjúkradagpeninga skulu miðast við meðallaun bótaþega, miðað við greiðslur til félags- og Sjúkrasjóðs VR, síðustu 6 mánaða áður en launagreiðslur féllu niður. Meðallaun þeirra sem greitt hafa skemur en 6 mánuði til Sjúkrasjóðs VR reiknast á eftirfarandi hátt:
- Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu sjúkradagpeninga úr Sjúkrasjóði annars verkalýðsfélags innan ASÍ, öðlast rétt í Sjúkrasjóði VR eftir að greitt hefur verið í félags- og Sjúkrasjóð VR í einn mánuð, enda hafi hann fram að því haft rétt hjá fyrri sjóðnum. Til að finna meðallaun viðkomandi skal miða við fjölda mánaða sem greitt hefur verið í Sjúkrasjóð VR.
- Meðallaun þeirra sem ekki hafa átt rétt hjá sjúkrasjóði annars stéttarfélags og ekki hafa greitt sem svarar lágmarksgjaldi til félags- og Sjúkrasjóðs VR, skal finna með því að deila í laun á viðmiðunartímabili með 6 mánuðum, þó svo að greitt hafi verið skemur en 6 mánuði.
Sótt um er um á Mínum síðum og þurfa sjúkradagpeningavottorð læknis, staðfesting frá atvinnurekanda og afrit af síðasta launaseðli að fylgja með. Einnig þarf að upplýsa um nýtingu persónuafsláttar. Réttur til sjúkradagpeninga fyrnist á 24 mánuðum.
Dagpeningar vegna alvarlegra veikinda maka
Dagpeningar vegna alvarlegra veikinda maka eru greiddir allt að 90 daga (80% af launum). Hægt er að sækja um dagpeninga með því að fylla út umsókn um sjúkradagpeninga.
Sótt um er um á Mínum síðum og þurfa sjúkradagpeningavottorð læknis, staðfesting frá atvinnurekanda og afrit af síðasta launaseðli að fylgja með. Einnig þarf að upplýsa um nýtingu persónuafsláttar. Réttur til sjúkradagpeninga fyrnist á 24 mánuðum.
Áfengis- eða vímuefnameðferð
Sjúkrasjóður VR greiðir sjúkradagpeninga í allt að 120 daga vegna sjúkdóms, sem stafar af ofneyslu áfengis eða vímuefna.
Sótt um er um á Mínum síðum og þurfa sjúkradagpeningavottorð læknis, staðfesting frá atvinnurekanda og afrit af síðasta launaseðli að fylgja með. Einnig þarf að upplýsa um nýtingu persónuafsláttar. Réttur til sjúkradagpeninga fyrnist á 24 mánuðum.
-
Tekjur fyrir veikindi eða slys
80.000
120.000
160.000
200.000Dagpeningagreiðslur úr Sjúkrasjóði
64.000
96.000
128.000
160.000