VR greiðir dánarbætur við andlát fullgildra VR félaga. Bótafjárhæðir fara eftir fjölskyldustærð og hvort viðkomandi var ennþá á vinnumarkaði.
Rétthafar dánarbóta
- Eftirlifandi maki.
- Börn hins látna (lögráðamenn f.h. barna undir 18 ára aldri) eða sá sem annast framfærslu barna að fullu.
- Aðrir lögerfingjar ef þeir bera kostnað af útför.
Dánarbætur
VR greiðir dánarbætur við andlát fullgildra VR félaga. Bótafjárhæðir fara eftir fjölskyldustærð og hvort viðkomandi var ennþá á vinnumarkaði.
- Ef hinn látni var giftur greiðast bætur til maka kr. 712.000. Ef hinn látni var ógiftur greiðist kr. 712.000 til þess aðila sem staðfest er að greiðir fyrir útför.
- Ef hinn látni lætur eftir sig barn (kjör- eða fósturbarn) yngra en 18 ára greiðast vegna hvers barns kr. 800.000, þá til hvers barns eða eftir ákvörðun framkvæmdastjórnar hverju sinni til þess sem hefur barn á framfæri sínu.
- Að auki greiðist upphæð sem svarar til inneignar viðkomandi í VR varasjóði.
Heimilt er að greiða dánarbætur vegna þeirra sem látið hafa af störfum við 60 ára aldur eða síðar hafi þeir verið fullgildir VR félagar í samfellt 5 ár áður en þeir láta af störfum:
Dánarbætur eldra félagsfólks eins og það er skilgreint í 3. gr. laga VR eru sem hér segir.
Mánuðir frá því að félagsfólk varð eldri félagar:
1-12 mánuðir kr. 712.000
13-24 mánuðir kr. 569.600
25-36 mánuðir kr. 498.400
37-48 mánuðir kr. 427.200
49-60 mánuðir kr. 356.000
60 mánuðir eða meira 350.000 kr.
Dæmi um dánarbætur
Dánarbætur | |
---|---|
Fullgildur VR félagi | kr. 712.000 |
VR félagi með eitt barn | kr. 1.512.000 |
VR félagi með þrjú börn | kr. 3.112.000 |
VR félagi með fimm börn | kr. 4.712.000 |
Breyttar reglur vegna greiðslu dánarbóta tóku í gildi 12. desember 2023
Dánarbætur vegna andláts barna félagsfólks
Sjúkrasjóðurinn greiðir einnig bætur vegna andláts barna félagsfólks, yngri en 18 ára, 712.000 kr.