Við mælum með því að þú skoðir þetta þrennt:
Þú ert ekki ein/n ef þér finnst leiðin til faglegrar og persónulegrar þróunar vera óljós. Hér eru nokkur ráð og leiðbeiningar sem gætu nýst þér. Með því að nota þau getur þú glöggvað þig á þínum eigin styrkleikum og hæfni og fundið hvata til þess að þróast áfram.
1. Komdu styrkleikum þínum og hæfni í orð
Farðu í saumana á starfinu þínu, hæfni og styrkleikum og finndu þína leið í átt að nýjum tækifærum. Hannaðu skýra mynd af þér. Þegar þú hefur sett orð á styrkleika þína og hæfni, ertu betur til þess fallin/n að halda áfram starfsþróun eða skipta um starf. Leiðbeiningarnar hjálpa þér að fá skýra mynd af því hvar þú ert í dag og hvert þú vilt fara.
Lestu meira hér.
2. Starfsþróunarráðgjöf
Stundum er gott að spjalla við einhvern um hvert þú vilt stefna með þína starfsþróun. Náms- og starfsráðgjafar veita ráðgjöf um áhugasvið og styrkleika ásamt ýmsu fleiru.
Þú getur pantað tíma í starfsþróunarráðgjöf á Mínum síðum þér að kostnaðarlausu.
3. Hvar stendur þú í stafrænni hæfni?
Nú eru margir vinnustaðir að skoða hvernig þeir geti nýtt tækni betur til að auka þjónustu við sína viðskiptavini, nýta gögnin sín betur, vera með skilvirkari ferla og margt fleira. Hvað getur þú gert til þess að bregðast við aukinni kröfu um stafræna hæfni? Fyrsta skrefið getur verið að mæla hvar þú stendur.
Lestu meira um hvernig þú getur skoðað þína stafrænu hæfni og borið saman við aðra í þinni starfsgrein.