Orlofsuppbót skv. kjarasamningum VR er kr. 58.000 árið 2024 (fyrir 1. maí 2023 til 30. apríl 2024 m.v. fullt starf.) Orlofsuppbót skal greiða eigi síðar en 1. júní ár hvert.
Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof eða 1.653,75 klst. á skrifstofu og 1.743,75 klst í verslun.
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.
Uppbótin greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu öllu starfsfólki sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl EÐA eru í starfi fyrstu viku í maí.
Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Hér að neðan getur þú reiknað út orlofsuppbótina þína.