Vinnutími skv. samningi VR og SA
Starfsfólk í afgreiðslu:
Dagvinnutími er frá kl. 9:00 til 18:00 alla virka daga og skal vera samfelldur. Heimilt er að dagvinnutími hefjist fyrir kl. 9:00 að morgni en þó aldrei fyrir kl. 7:00.
Virkur vinnutími afgreiðslufólks þ.e. unninn tími án neysluhléa, í dagvinnu er 35,83 (35:51) klukkustundir. Séu kaffitímar teknir lengist vinnutíminn sem því nemur og verður 38,75 (38:45) klukkustundir. Vinnutíma skal hagað með samkomulagi milli starfsfólks og atvinnurekenda eftir því sem hentar á hverjum stað.
Á aðfangadag og gamlársdag, beri þá upp á virka daga, er dagvinnutímabil til kl. 12:00 á hádegi. Fyrsta vinnudag eftir jól skal dagvinna í verslunum hefjast kl. 10:00.
Starfsfólk á skrifstofu/sölufólk:
Dagvinnutími er frá kl. 9:00 til 17:00 alla virka daga og skal vera samfelldur.
Virkur vinnutími skrifstofufólks og sölufólks, þ.e. unninn tími án neysluhléa, í dagvinnu er 35,50 (35:30) klukkustundir á viku. Séu kaffitímar teknir lengist vinnutíminn sem því nemur og verður 36,75 (36:45) klukkustundir á viku. Vinnutíma skal hagað með samkomulagi milli starfsfólks og atvinnurekenda, með lengingu daglegs vinnutíma fyrir kl. 9:00, eftir kl. 17:00 og/eða styttri matartíma.
Á aðfangadag og gamlársdag, beri þá upp á virka daga, er dagvinnutímabil til kl. 12:00 á hádegi.
Full dagvinna er 167,94 klst. (167:56) hjá afgreiðslufólki og 159,27 klst. (159:17) hjá skrifstofufólki. Vinna umfram það telst yfirvinna. Sjá nánar um yfirvinnu hér.
Vinnutími skv. samningi VR og FA
Dagvinnutími er frá kl. 7:00 til kl. 19:00 alla virka daga. Dagvinnutími skal falla innan þessara marka og vera samfelldur. Virkur vinnutími á viku er 35 klst. og 30 mínútur.
Með samkomulagi atvinnurekanda og starfsfólks má skipuleggja fyrirfram í fyrirtæki þannig að ljóst sé hvernig vinnu verður háttað á tímabilinu. Vinnutíma starfsmanna í fullu starfi og starfsmanna í hlutastarfi má þá haga þannig að vikulegur vinnutími sé breytilegur á milli kl. 07:00 til 19:00 mánudaga til föstudaga, en þó að hámarki í 16 vikur.
- Hámarksvinnutími á 16 vikna tímabili: Meðalvinnutími reiknaður á allt að 16 vikna tímabili má ekki vera lengri en 48 vinnustundir og er þá yfirvinna meðtalin, sbr. samkomulag um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma.
- Breytingar á vinnutíma: Breytingar sem kunna að verða gerðar á vinnutímanum skulu að jafnaði liggja fyrir með 4 vikna fyrirvara.
- Fyrirkomulag launa: Fyrir allar vinnustundir í viku, allt að 35 klst. og 30 mínútur, skal greiða með venjulegum launum, hvort sem um starfsmenn í hlutastarfi eða starfsmenn í fullu starfi er að ræða.
- Vinna umfram 45 klst. á viku: Fari vinnutími á tilteknu tímabili fram úr 45 vinnustundum skal greiða yfirvinnukaup fyrir tímana sem eru umfram 45 á viku svo og fyrir tímann frá kl. 19:00 til 07:00 þó að ekki sé farið fram úr eðlilegri, vikulegri vinnutímaviðmiðun að meðaltali á tímabilinu.