Réttindi þín í desember

Til að njóta gæðastunda um hátíðirnar - og allt árið um kring - á félagsfólk VR rétt á 11 klukkustunda hvíld á sólarhring að lágmarki. Ef 11 klst. hvíld næst ekki skal veita hana síðar. Þannig safnast svokallaður frítökuréttur upp. Fyrir hverja klst. sem 11 tíma hvíldin skerðist um öðlast starfskraftur 1,5 klst. í dagvinnu í frítökurétt.

Hér fyrir neðan er farið yfir helstu atriði sem hafa ber í huga í annríki jólaverslunarinnar. Ef upp koma spurningar er starfsfólk kjaramálasviðs ávallt reiðubúið að aðstoða. Hægt er að hafa samband í vefspjallinu eða á vr@vr.is.

  • Desemberuppbót til félagsfólks VR skal greiðast eigi síðar en 15. desember og er 106.000 kr. fyrir fullt starf á árinu 2024.

  • Ekki er vinnuskylda á eftirfarandi dögum og skal starfsfólk halda sínum dagvinnulaunum óskertum.

    • Eftir kl. 12 á aðfangadag (stórhátíðardagur)
    • Jóladagur (stórhátíðardagur)
    • Annar í jólum (almennur frídagur)
    • Eftir kl. 12 á gamlársdag (stórhátíðardagur)
    • Nýársdagur (stórhátíðardagur)

    Auk þess má minna á að fyrsta vinnudag eftir hátíðirnar skal dagvinna í verslunum hefjast kl. 10.

  • Starfsfólk á að halda föstum og reglubundnum launum á skilgreindum frídögum. Samþykki starfsfólk að taka að sér vinnu á skilgreindum frídögum skal greiða sérstaklega fyrir þá vinnu, til viðbótar við greiðslu fyrir fastan og reglubundinn vinnutíma. Eftirvinnukaup skal greiða fyrir þá tíma upp að 167,94 klst. í verslun eða 159,27 klst. í skrifstofustarfi. Greitt er yfirvinnukaup fyrir vinnu umfram fyrrnefnda tíma. Stórhátíðarkaup er greitt fyrir alla vinnu sem unnin er á stórhátíðardögum.

    Kaupið reiknast þannig:

    Fyrir verslun:

    • Eftirvinnukaup: 0,8235% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu í verslun.
    • Næturvinnukaup: 0,8824% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu í verslun.
    • Yfirvinnukaup: 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu og í verslun.
    • Stórhátíðarkaup: 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu og í verslun.

    Fyrir skrifstofu:

    • Eftirvinnukaup: 0,875% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu.
    • Næturvinnukaup: 0,9375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu.
    • Yfirvinnukaup: 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu og í verslun.
    • Stórhátíðarkaup: 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu og í verslun.

    Ef starfsfólk er ráðið inn í verslun yfir jólin tímabundið, t.d. einungis í þrjár vikur og vinnur umfram fullt starf þær vikur skal greiða yfirvinnukaup fyrir alla tíma sem unnir eru umfram það, eða umfram 116,25 tíma (3*38,7 klst. þegar talið í vikum eða 7,75 tímar x 15 dagar ef talið er í full unnum dögum) í þessu tilviki.

  • Stórhátíðarvinna er vinna á nýársdegi, föstudeginum langa, páskadegi, hvítasunnudegi, 17. júní, frídegi verslunarmanna, jóladegi og eftir kl. 12:00 á aðfangadegi og gamlársdegi.

    Öll vinna sem er unnin á stórhátíðum greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Greiðist þá stórhátíðarkaup til viðbótar við föst og reglubundin laun.

  • Á hverjum sólarhring á starfskraftur rétt á 11 klst. hvíld. Óheimilt er samkvæmt lögum að skipuleggja vinnu á þann hátt að vinnudagurinn sé lengri en 13 klst.

    Ef 11 klst. hvíld næst ekki skal veita hana síðar. Þannig safnast svokallaður frítökuréttur upp. Fyrir hverja klst. sem 11 tíma hvíldin skerðist um öðlast starfskraftur 1,5 klst. í dagvinnu í frítökurétt.

    Dæmi: Starfskraftur hefur störf kl. 08:00. Hann lýkur störfum kl. 23:00 og kemur aftur til vinnu kl. 08:00 daginn eftir. Samfelld hvíld á milli vinnudaga er einungis 9 klst. Hvíldartími hefur þ.a.l. verið skertur um 2 klst. og öðlast viðkomandi starfskraftur því frítökurétt upp á 3 klst. fyrir vikið.

    Undir öllum kringumstæðum er óheimilt að skerða 8 klst. samfellda hvíld.

  • Hádegismatartími: Á bilinu ½ - 1 klst. (háð samkomulagi, milli kl. 12:00 og 14:00 á daginn). Þessi matartími telst ekki til vinnutíma. Starfsfólk þarf að vinna a.m.k. 5 klst. til að öðlast rétt til matartíma í hádeginu.

    Kvöldmatartími: 1 klst. (á milli kl. 19:00 og 20:00) og telst til vinnutíma. Ef kvöldmatartíminn eða hluti hans er unninn skal greiða þann hluta með tvöföldu kaupi. Réttur til kvöldmatartíma miðast við a.m.k. 4,5 klst. vinnu.

    Kaffitími: 35 mínútur á dag á dagvinnutíma hjá afgreiðslufólki, (15 mín hjá skrifstofufólki) miðað við fullan vinnudag. Er veitt í beinu hlutfalli við vinnutíma starfsfólks í hlutastörfum.

    Sé unnið utan dagvinnutímabils skal matartími vera frá kl. 3:00–4:00 og kaffitímar frá kl. 22:00–22:20 og kl. 6:15–6:30.

    Á Þorláksmessu er þó heimilt að veita 20 mínútna kaffitíma á tímabilinu frá kl. 21:40-22:20. Ofangreindir matar- og kaffitímar teljast til vinnutíma og sé unnið í þeim greiðist tilsvarandi lengri yfirvinna.

  • Það er alltaf góð vinnuregla að halda utan um alla sína vinnutíma og sérstaklega þegar mikið er að gera eins og á aðventunni. Í mörgum tilvikum er um talsverða aukavinnu að ræða og mikilvægt að halda vel utan um tímaskráningu svo komast megi hjá misskilningi og mistökum við útreikning launa.

    Þar sem flestar verslanir ráða tímabundið til sín skólafólk yfir háannatímann er einnig mikilvægt að hnykkja á þessu atriði við nýtt samstarfsfólk.

  • Vinnu skal skipuleggja á þann hátt að hver starfskraftur fái a.m.k. einn vikulegan frídag.

    Ef starfskraftur er látinn vinna 7 daga í röð á hann rétt á fríi á virkum degi í næstu viku á eftir, án skerðingar launa.

  • Þegar unnið er á laugardögum og sunnudögum greiðist aldrei minna en fyrir 4 klst., þótt unnið sé skemur.