Í kjarasamningum VR og SA segir að áunnin réttindi starfsfólks sem hættir störfum skuli haldast ef starfskrafturinn er endurráðinn hjá sama atvinnurekanda innan eins árs. Ef starfskrafturinn er endurráðinn hjá sama atvinnurekanda eftir meira en eitt ár (en þó innan þriggja ára) fær hann sömu réttindi og hann naut áður eftir einn mánuð.
Starfskraftur, sem unnið hefur í eitt ár eða lengur samfellt hjá sama atvinnurekanda, nýtur áunninna réttinda á ný eftir 3 mánaða starf ef til endurráðningar kemur eftir meira en þriggja ára starfshlé en þó innan 5 ára.
Flutningur áunninna réttinda milli starfa
Starfsfólk vinnur sér inn réttindi eftir því hversu lengi það starfar hjá sama fyrirtækinu. Það er hins vegar misjafnt hvernig starfsfólk flytur með sér réttindin milli starfa.
- Starfskraftur sem hefur áunnið sér réttindi til 4 eða 6 mánaða launagreiðslna í veikindaforföllum hjá einu fyrirtæki og skiptir um starf á rétt á launum í veikindum í a.m.k. 2 mánuði á hverjum 12 mánuðum hjá sínum nýja atvinnurekanda.
- Starfskraftur sem hefur unnið í 5/10 ár samfellt hjá sama atvinnurekanda hefur 27/30 daga orlofsrétt . Ef sá hinn sami skiptir um starf fær hann þennan rétt aftur eftir 3ja ára starf hjá nýja atvinnurekandanum, enda hafi rétturinn verið sannreyndur við ráðningu.
Áunnin réttindi vegna starfa erlendis
Erlent starfsfólk hér á landi svo og þeir Íslendingar sem starfað hafa erlendis flytja með sér áunnin starfstíma gagnvart réttindum kjarasamninga sem tengd eru starfstíma í starfsgrein, enda verði starfið erlendis talið sambærilegt.
Starfsfólk skal við ráðningu færa sönnur á starfstíma sinn með vottorði fyrrum atvinnurekanda eða með öðrum jafn sannanlegum hætti. Geti starfskraftur ekki við ráðningu framvísað vottorði sem fullnægir skilyrðum skv. 3. og 4. mgr., er honum heimilt að leggja fram nýtt vottorð innan þriggja mánaða frá ráðningu. Taka þá áunnin réttindi gildi frá og með næstu mánaðamótum á eftir. Atvinnurekandi skal staðfesta móttöku vottorðs.
Í vottorði fyrrum atvinnurekanda skal m.a. greina:
- Nafn og persónuauðkenni viðkomandi starfskrafts,
- Nafn og auðkenni fyrirtækisins sem gefur út staðfestinguna, ásamt síma, netfangi og nafni þess aðila sem er ábyrgur fyrir útgáfu hennar,
- Lýsingu á því starfi sem viðkomandi stundaði
- Hvenær viðkomandi hóf störf hjá viðkomandi fyrirtæki, hvenær hann lauk störfum og hvort rof, og þá hvenær, var á starfi viðkomandi.
- Vottorð skal vera á ensku eða þýtt yfir á íslensku af löggiltum skjalaþýðanda.