Orlofslaun eru greidd með eftirfarandi hætti:
- Orlofsreikningur í banka: Fyrirtæki stofnar þá sérstakan orlofsreikning þar sem orlofslaun eru lögð inn mánaðarlega. Þannig safnast þau upp og starfskraftur fær þau greidd út frá bankanum í byrjun maí hvers árs.
- Greiðsla með mánaðarlaunum: Þetta er mjög algengt fyrirkomulag og eru þá uppsafnaðar orlofsstundir/dagar nýttir og þeir greiddir með hefðbundnum hætti í lok þess mánaðar þegar orlof er tekið. Hér að neðan má sjá dæmi um útreikning á orlofsstundum.
- Orlof greitt út áður en starfsfólk fer í sumarfrí eða orlof. Þetta fyrirkomulag er orðið frekar sjaldgæft en þannig er það orðað í lögum um orlof nr. 30/1980. Aðferðirnar hér að ofan eru mun algengari.
Dæmi:
Orlofsstundir eru fundnar með því að finna orlofsprósentuna (10,17%/24 dagar, 10,64% /25 dagar, 11,11% /26 dagar, 11,59% /27 dagar, 12,07% /28 dagar, 12,55% /29 dagar eða 13,04% /30 dagar) af heildarlaunum og deila í þá útkomu með dagvinnutímakaupi. Dagvinnutímakaup er fundið með því að deila 159,27 klst. fyrir skrifstofufólk og 167,94 klst. fyrir verslunarfólk upp í föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu. Í dæminu hér að neðan er reiknað út orlof fyrir afgreiðslumann.
- Dagvinna kr. 450.000
- Yfirvinna kr. 50.000
- Samtals kr. 500.000
Dagvinnutímakaup er:
Föst mánaðarlaun 450.000 / 167,94 (deilitala) = 2.679,53 kr á klukkustund í dagvinnu.
Orlofsstundir eru án yfirvinnu: 450.000 kr. x 10,17% = 45.765 kr. / 2.679,53 kr. tímakaup í dagvinnu = 17,08 orlofsstundir.
Orlofsstundir með yfirvinnu: 500.000 kr. x 10,17% = 50.850 kr. / 2.679,53 kr. tímakaup í dagvinnu = 18,97 orlofsstundir.
Orlofsstundir eru:
Heildarlaun 450.000 x 10,17% = 45.765 / 2.679,53 tímakaup í dagvinnu = 17,08 orlofsstundir.
Þegar viðkomandi starfskraftur fer í orlof, hefur tímakaup hans hækkað í kr. 2.700 vegna launabreytinga. Þá reiknast orlofsstundir hans yfir árið á kr. 2.700 en ekki á kr. 2.679,53 hver orlofsstund.
Af orlofslaunum ber að greiða skatta og öll önnur gjöld, því hér er um venjulega launagreiðslu að ræða.